Ægir hefur samið við miðjumanninn Nikola Kristinn Stojanovic sem kemur til félagsins frá Dalvík/Reyni. Nikola er 25 ára gamall og bætir bæði reynslu og breidd í leikmannahóp Ægis fyrir komandi tímabil.Nikola Kristinn Stojanovic ólst upp á Akureyri og lék í yngri flokkum með Þór. Hann á að baki meistaraflokksleiki með Þór, Fjarðarbyggð, KF, KFA og Dalvík/Reynir.
Hann er miðjumaður, þekktur fyrir leikni og útsjónarsemi og hefur leikið alls 196 KSÍ-leiki og skorað 19 mörk. Þar af eru um 60 leikir í Lengjudeild karla, næst efstu deild íslenskrar knattspyrnu, sem telst dýrmæt reynsla fyrir liðið.
Með komu Nikola styrkist miðjan hjá Ægir enn frekar og er vænst að reynsla hans nýtist vel í baráttunni á tímabilinu. Félagið býður hann hjartanlega velkominn og hlakkar til að sjá hann í gulu og svörtu treyjunni.
