Naumt tap hjá Oldboys

1. sep 2011

| umsjon

Naumt tap hjá Oldboys

Oldboys léku gegn Létti í gærkvöldi á útivelli.  Strákarnir byrjuðu leikinn vel og komust yfir en eitthvað dapraðist leikurinn í kjölfarið því næstu 3 mörk skoruðu Léttismenn.  Ægismenn tóku sig þá saman í andlitinu og náðu að jafna muninn 3:3 og lítið eftir af leiknum.  En í blá lokin náðu heimamenn að pota inn einu grísamarki og niðurstaðan 4:3 tap. 

Það voru Markús, Reynir og Gústi sem skoruðu mörk Ægis.