N1 mótið hjá 5.flokki að baki…..

6. júl 2009

| umsjon

N1 mótið hjá 5.flokki að baki…..

Það var stormað norður í land síðastliðinn miðvikudagsmorgun með 5. flokk karla. Við vorum með 24 eldhressa stráka með í för, þar af voru 5 þeirra úr 6. flokki karla. Við spiluðum með þrjú lið í mótinu A – lið, C – lið, og E – lið. Mótið gekk ljómandi vel, strákarnir stóðu sig með mikilli prýði jafnt innan vallar sem utan. Það sem eftir stendur er að við eigum fullt erindi í það að spila við stærstu og fjölmennustu lið landsins í þessum aldursflokki. Allir leikirnir voru jafnir og okkar lið voru að gera mjög góða hluti. A – liðið vann t.d. lið Hauka, ÍBV og ÍR og hinir leikirnir töpuðust með litlum mun. En þess má geta að í A – liðið okkar vantaði einn lykilmann og var sárgrætilegt að hann skyldi ekki eiga heimangengt í mótið, því þá hefðum eflaust náð að kroppa allhressilega í efri hlutann á mótinu.C – liðið tapaði aðeins einum leik í mótinu. E – liðið kom einna mest á óvart skipað yngri strákum og nokkrum eldri sem blómstruðu með þeim og saman náðu þeir að búa til skemmtilegt lið sem vann marga leiki. Það þarf að hlúa vel að þessum strákum því þetta eru okkar framtíðar menn í Ægisliðinu, mikil breiðfylking og margir góðir leikmenn þarna samankomnir á svipuðum aldri.

Sérstakar þakkir fá Ævintýraferðir Sveinka og Gassa fyrir vasklega framgöngu…..

Áfram Ægir