Meistaraflokkur karla tók á móti liði Stálúlfs á föstudagskvöld. Það er skemmst frá að segja að okkar menn höfðu mikla yfirburði gegn gestunum og unnu 10:1 sigur. Staðan var 3:1 í hálfleik en Stálúlfur jafnaði leikinn úr vítaspyrnu snemma leiks. Í síðari hálfleik opnuðust svo allar flóðgáttir og Ægismenn settu 7 mörk. Þess má geta að Ingi Rafn skoraði helming marka Ægis eða 5……..geri aðrir betur.
Miklir yfirburðir hjá meistaraflokk gegn Stálúlf
25. jún 2012
| Garðar