Mikilvægur sigur hjá meistaraflokk karla

8. júl 2011

| umsjon

Mikilvægur sigur hjá meistaraflokk karla

Meistaraflokkur karla lék í kvöld gegn KFS á Þorlákshafnarvelli.  Leikurinn var óvenju snemma en var það gert til að gestirnir kæmust með síðustu ferð til Eyja.

Leikurinn hófst í blíðskapar veðri og völlurinn í fínu standi.  Okkar menn voru þó ekki alveg klárir í slaginn því KFS komust yfir strax á 7. mín.  Luc náði síðan að jafna á 15. mín. hann var sterkur í leiknum og gerði oft usla í vörn gestanna.  Ekki náðu liðin að bæta við mörkum og staðan því 1:1 í hálfleik.

Ægismenn byrjuðu af krafti í síðari hálfleik og Luc bætti við sínu öðru maki þegar ein mínúta var liðin af hálfleiknum.  Okkar strákar voru talsvert sterkari aðilinn í síðari hálfleik og fengu nokkur góð færi.  Michael kom stöðunni í 3:1 á 67. mín. og héldu Ægismenn þeirri forustu út leikinn.

Eins og áður segir voru okkar menn heldur sterkari aðilinn og eftir að hafa náð tveggja marka forustu var sigurinn aldrei í hættu.  Eftir þennan sigur eru Ægismenn með 13 stig í 5. sæti en það eru aðeins 3 stig í topp sætið.  Næsti leikur er einmitt gegn toppliði KFR en hann fer fram á Hvolsvelli næstkomandi fimmtudag.