Það er heldur betur mikið undir þegar meistaraflokkur heimsækir Hamar í Hveragerði í kvöld. Fyrir utan að vera grannaslagur og þar með heiðurinn að veði þá sitja liðin í 10. og 11. sæti og aðeins 4 stig á milli. Hamar situr í fallsæti með 10 stig og geta með sigri minnkað muninn á liðunum í aðeins 1 stig. Ef Ægir sigrar er munurinn á liðunum orðin 7 stig og staða okkar manna talsvert þægilegri.
En þrátt fyrir alla útreikninga þá er þetta einn af stóru leikjum sumarsins og því ættu allir að skella sér á Grýluvöll í kvöld og hvetja strákana til sigurs. Leikurinn hefst kl. 19:15.
