Bæði 5. flokkur karla og kvenna áttu leiki á Íslandsmótinu í dag. Stelpurnar fóru með Ægisrútunni til Vestmannaeyja en strákarnir heimsóttu Stjörnuna í Garðabæ. Ekki voru úrslitin eins og best verður á kosið hjá liðunum en það voru allir að leggja sig fram og leikgleðin í fyrirrúmi.
Hér má sjá telpurnar í 5. flokk kvenna fyrir leik gegn Víði í síðustu viku.
Image URL: /upload/images/5. kvenna 2011/CIMG1967 (800×600)_thumb.jpg