Mikið fjör í skemmtiferð 6. og 7. flokks

26. maí 2014

| Garðar

Mikið fjör í skemmtiferð 6. og 7. flokks

Það var mikið fjör á Papas pizza.

Það var mikið fjör á Papas pizza.

6. og 7. flokkar Ægis og Hamars fóru í skemmtiferð á föstudaginn.  Rúmlega 70 krakkar skelltu sér í Sandgerði og spiluðu við krakkana þar.

Eftir leikina var haldið til Grindavíkur þar sem Papas pizza tók á móti krökkunum með pizzahlaðborði.  Það er svo sannarlega mikið verk að gefa 70 svöngum fótboltakrökkum að borða á stað sem tekur 50 en starfsmenn og foreldrar leystu verkið farsællega.  Allir fóru sáttir og sælir heim.