Lokahóf yngri flokka Ægis var haldið fimmtudaginn 6. september í Ráðhúsinu. Hátt í 80 krakkar mættu á hófið þar sem veittar voru viðurkenningar fyrir liðið tímabil og í lokin gæddu allri sér á dýrindis pizzum.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum eru þetta flottir krakkar sem æfa hjá félaginu en á hófinu rúllaði skemmtileg myndasýning frá liðnu sumri sem var viðburðarríkt og skemmtilegt.