5. 6. og 7. flokkur tóku þátt í jólamóti Hamars sem var fór fram helgina 6. og 7. og 13. og 14. desember. Mótið var stórt og sniðum þetta árið en Ægir og Hamar tefldu fram sameiginlegum liðum í öllum flokkum.
Það er óhætt að segja að okkar krakkar hafi staðið sig vel innan vallar sem utan, mikið vannst af leikjum og mörg mörk skoruð.
Eftir mótið fengu svo allir keppendur pizzu, ís og verðlaun.







