Á laugardag kl. 14:00 fengum við lið Þróttar úr Vogunum í heimsókn. Það sem hægt er að segja um þennan leik er það einna helst að ,, veðurguðirnir “ voru í bílstjóra sætinu. Ekki var boðið uppá mikinn knattspyrnuleik… enda mjög erfitt að leika knattspyrnu við þessar aðstæður. Lokatölur urðu 2 – 2, eftir að heimamenn höfðu legið á 2 – 1 fram á 50-51mín. með vindinn í fangið.Það sem þessi leikur skilur eftir er eitt stig og það er jú betra en ekki neitt.
Áfram Ægir
Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla 2010/IMG_2536_thumb.JPG