Meistaraflokkurinn hefur æfingar að nýju

4. nóv 2012

| Garðar

Meistaraflokkurinn hefur æfingar að nýju

Eftir að hafa tryggt sér sæti í 2. deild næsta tímabil var gert hlé á æfingum meistaraflokks í nokkrar vikur.  Nú um mánaðarmótinu hófust æfingar að nýju.  Alli þjálfari hóf tímabilið á að kynna æfingaáætlun fram að keppnistímabili í vor í fundaraðstöðu íþróttamiðstöðvarinnar.  Rúmlega 20 leikmenn mættu á fundinn og voru þar bæði gömul og ný andlit.