Meistaraflokkur Ægis tók í kvöld á móti Grindavík í annari umferð Borgunarbikarsins. Grindavík er í 1. deild og spáð góðu gengi þar.
Gestirnir byrjuðu betur og komust yfir strax á 6. mínútu. Á 30. mín. bættu síðan Grindvíkingar við öðru marki og blés því ekki byrlega fyrir Ægi. En strákarnir náðu að svara markinu mínútu síðar með marki frá Hauki Má. Á 36 mín. fengu síðan Grindvíkingar gefins vítaspyrnu og staðan 1:3 í hálfleik.
Ekki byrjaði síðari hálfleikur vel því á 51. mín. komust Grindvíkingar í 1:4 og útlitið orðið ansi dökkt fyrir okkar menn. En með seiglu og baráttu komu tvö góð mörk frá Hauk Má (68) og Marteini Gauta (71) og spenna komin í leikinn. En ekki náðu Ægismenn að bæta við marki og því var niðurstaðan 3:4 sigur Grindvíkinga.
Strákarnir geta borið höfuðið hátt eftir þennan leik. Liðið átti fína spretti og barðist af krafti. Næsti leikur liðsins er fyrsti heimaleikur í deild. Hann er gegn KV og fer fram næstkomandi laugardag kl. 14:00 á Þorlákshafnarvelli.