Meistaraflokkur karla lék gegn liði Ýmis á föstudaginn í úrslitaleik C deildar Lengjubikarsins og fór leikurinn fram hér í Þorlákshöfn. Leikurinn var nokkuð jafn í fyrrihálfleik og var staðan jöfn af honum loknum 1:1. Í síðari hálfleik höfðu Ægismenn talsverða yfirburði og náðu að komast í 3:1 en gestirnir áttu ótrúlegan endasprett og bættu við þremur mörkum á 69. 77. og 79. mínútu og lauk leiknum með sigri Ýmis 3:4. Þetta er þrátt fyrir úrslitin góður árangur hjá liðinu og gefur góðar væntingar fyrir sumarið. Það voru Danislav og Guðni (2) sem skoruðu mörk Ægis.
Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/stuffið_thumb.JPG