Meistaraflokkur með leik í kvöld

3. jún 2011

| umsjon

Meistaraflokkur með leik í kvöld

Meistaraflokkur karla leikur sinn þriðja leik á Íslandsmótinu í kvöld.  Liðið heldur í vesturbæ Reykjavíkur og spilar þar gegn KV.  Leikurinn hefst kl. 20:00
Fyrir leikinn eru Ægismenn í 5. sæti með þrjú stig eftir tvo leiki en KV eru í 7. sæti með ekkert stig eftir jafn marga leiki.  Sigur í þessum leik kæmi okkar mönnum í 3. sæti.

                                                                 Áfram Ægir