Meistaraflokkur leikur fyrri leik sinn í undanúrslitum 3. deildar gegn Magna á Grenivík í dag. Leikurinn hefst kl. 14:00 og má segja að liðið hafi sjaldan spilað mikilvægari leik. Það er nauðsynlegt að ná góðum úrslitum á útivelli en síðari leikurinn fer fram á Þorlákshafnarvelli næstkomandi miðvikudag.
Það er skarð fyrir skildi í liði Ægis en Ivan, Ingimar og Ingi Rafn eru allir í leikbanni en það kemur maður í manns stað og í hópinn koma Arnar Þór, Arnar Logi og að sjálfsögðu Alli þjálfari.
