Meistaraflokkur lék gegn Stálúlf í gær í fyrstu umferð Borgunarbikarsins. Okkar menn höfðu nokkuð auðveldan sigur, 6:2.
Mörk Ægis skoruðu William (13, 43), Aron Ingi (24), Uchenna (30), Milan (75) og eitt markið var sjálfsmark. Liðið lauk leiknum 9 á móti 11 því Nenad fékk rautt spjald undir lok leiks og Uche fór meiddur af velli.
Ægismenn eru því komnir áfram og mæta KV í annari umferð en sá leikur fer fram mánudaginn 18. maí á Þorlákshafnarvelli.
