Meistaraflokkur karla með útisigur… hreinn úrslitaleikur framundan..

18. ágú 2009

| umsjon

Meistaraflokkur karla með útisigur… hreinn úrslitaleikur framundan..

Ægismenn gerðu góða ferð til Reykjavíkur síðastliðin laugardag og unnu góðan útisigur á liði Léttismanna með 4 mörkum gegn einu. Á sama tíma unnu Sindramenn sinn heimaleik. Það verður því hreinn úrslitaleikur á milli þessara liða nk. laugardag hér á Þorlákshafnarvelli um það hvort liðið nær að tryggja sinn inn í úrslitakeppnina. Bæjarbúar eru hvattir til að fjölmenna á völlinn og ýta sínum mönnum yfir síðustu hindrunina á leiðinni í úrslitakeppnina.

Áfram Ægir…
Ægislagið


Image URL: /aegirfc/upload/images/Lógó/logo_thumb.jpg