Meistaraflokkur karla byrjar úti gegn Hetti næsta sumar

17. nóv 2012

| Garðar

Meistaraflokkur karla byrjar úti gegn Hetti næsta sumar

Dregið var í töfluröð fyrir Íslandsmót sumarsins á fundi formanna og framkvæmdastjóra aðildarfélaga KSÍ síðstliðinn laugardag.  Fyrsti leikur Ægis í 2. deild verður útileikur gegn Hetti frá Egilsstöðum.  Fyrsti heimaleikur verður síðan í annari umferð gegn KV.  Í fjórðu umferð verður síðan stórleikur á Þorlákshafnarvelli þegar Hamar kemur í heimsókn.

Ekki er búið að dagsetja leikina en gera má ráð fyrir að mótið hefjist um miðjan maí.