Meistaraflokkur karla sigraði sinn fjórða leik í röð þegar þeir mættu KFR á Hvolsvelli í kvöld. Úrslit leiksins urðu 0:4 eftir að staðan hafði verið 0:1 í hálfleik. Okkar menn höfðu talsverða yfirburði í leiknum og sigurinn aldrei í hættu. Lið KFR er skipað frískum og líkamlega sterkum strákum sem eflaust eiga eftir að hirða stig af liðum í sumar. Mörk Ægis skoruðu Gunnar Valberg (2), Ársæll Jónsson og Matthías.
Eftir þennan sigur er liðið komið í þriðja sæti, einu stigi á eftir KFS frá Vestmannaeyjum. Næsti leikur Ægis er grannaslagur gegn Árborg á Þorlákshafnarvelli næstkomandi fimmtudag. Leikurinn hefst kl. 20:00.
Meistaraflokkur karla á sigurbraut
29. jún 2007
| umsjon