Meistaraflokkur karla leikur sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu þetta tímabilið á morgun, laugardaginn 11. maí. Að þessu sinni hefur liðið leik gegn Hetti og fer leikurinn fram á gervigrasvelli í Fellabæ en ekki er hægt að leika á Egilsstöðum vegna slæmrar tíðar undanfarið.
Þessi leikur er spennandi því nú leikur liðið í 2. deild eftir margra ára veru í þeirri þriðju. Leikurinn hefst kl. 14:00 og er hægt að fylgjast með stöðunni í leiknum á ksi.is undir næstu leikir.