Lokahóf Ægis var haldið síðastliðið laugardagskvöld. Dagskrá hófsins var með hefðbundnu sniði. Snæddar voru dýrindis veitingar, galdraðar fram af Gísla Eiríkssyni, ræður fluttar af formanni og þjálfara auk þess sem veittar voru viðurkenningar fyrir tímabilið.
Ingi Rafn var markahæsti leikmaður Ægis þetta tímabil, Eyþór Smári var valinn efnilegastur og Magnús Karl fékk sæmdarheitið besti leikmaður Ægis 2012.
Skemmtunin stóð fram á nótt enda aldeilis tilefni að gleðjast eftir þetta tímabil.