Lýsismótið, sem er mót fyrir 6. og 7. flokk, verður haldið með pompi og pragt hér í Þorlákshöfn á Uppstigningardag. Mótið hefst kl. 10:00 uppá grasvöllum og verður spilaður fótbolti til 14:00. Eftir það tekur svo við grill og verðlaunaafhending en mótinu líkur svo með sundlaugarpartý þar sem Ingó veðurguð og knattspyrnukappi skemmtir gestum með nokkrum af sínum bestu lögum.
Hingað koma lið frá Hveragerði, Flúðum og Stokkeyri auk krakkana okkar úr Ægi. Nú er bara að mæta á völlinn og horfa á knattspyrnuhetjur framtíðarinnar leika listir sínar.