Nú er knattspyrnutímabilinu lokið og þá er við hæfi að hafa uppskeruhátíð fyrir yngri flokkana. Lokahóf yngri flokka verður haldið í dag og fer það fram í Ráðhúsinu og hefst klukkan 17:30. Dagskrá verður með hefðbundnu sniði, farið yfir tímabilið, veittar viðurkenningar og í lokin eru veitingar. Allir sem æft hafa fótbolta með Ægi þetta tímabilið eru velkomnir. Nú fjölmennum við öll og eigum góða stund saman.
Lokahóf yngri flokka í dag
9. sep 2013
| Garðar