Lokahóf yngri flokka Ægis verður haldið miðvikudaginn 31. ágúst í Ráðhúsinu. Dagskráin verður með hefðbundnu sniði, viðurkenningar veittar og síðan öllum iðkendum boðið í pizzu.
Hófið hefst kl. 17:00 og er fyrir alla sem hafa æft á tímabilinu ss. síðastliðið sumar og vetur.
Vonandi sjá sér allir fært að mæta og fagna saman liðnu tímabili.
Lokahóf yngri flokka á miðvikudag
29. ágú 2011
| umsjon