Lokahóf meistaraflokks var haldið síðastliðinn laugardag í Ráðhúsinu. Veittar voru viðurkenningar fyrir liðið tímabil auk þess sem gestir gæddu sér á dýrindis veitingum.
Efnilegastur þetta tímabilið var valinn Marteinn Gauti Andrason og besti leikmaðurinn var Eyþór Smári Þórbjörnsson.
