Lokadagur knattspyrnuskólans – myndir

19. júl 2011

| umsjon

Lokadagur knattspyrnuskólans – myndir

Knattspyrnuskóla Ægis sumarið 2011 lauk síðastliðinn fimmtudag.  Skólinn hófst 6. júní og stóð í sex vikur.  Í honum æfðu krakkar í 6. 7. og 8. flokk fótbolta auk þess að gera margt annað skemmtilegt.  Rúmlega 30 krakkar voru í skólanum í sumar.  Umsjónarmenn skólans voru Garðar og Hófí en auk þeirra voru til aðstoðar starfsmenn úr vinnuskólanum. 
Á fimmtudaginn var síðan lokadagur Knattspyrnuskólans og þá var æft á nýja vellinum og í lokin grillveisla.  Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum voru krakkarnir í góðu stuði 🙂

Nú tekur við sumarfrí hjá iðkendum í þessum flokkum en hefðbundnar æfingar hefjast aftur í vikunni eftir verslunarmannahelgis.


Image URL: /upload/images/Lokadagur knattspyrnuskóla 2011/IMG_7699_thumb.JPG


Image URL: Lokadagur knattspyrnuskóla 2011