Líf og fjör á gervigrasinu þegar Hrunamenn komu í heimsókn

18. maí 2011

| umsjon

Líf og fjör á gervigrasinu þegar Hrunamenn komu í heimsókn

Það voru miklir taktar sýndir á gervigrasinu þegar Hrunamenn komu í heimsókn.  Þeir mættu með 6. og 7. flokk sem öttu kappi við okkar flokka.  Allir leikmenn Ægis lögðu sig 100% fram og óhætt að segja að glæsileg tilþrif hafi litið dagsins ljós.  Nóg var skorað af mörkum og voru allir hressir og kátir eftir leikin.