Liam John Michael Killa gekk fyrir stuttu í raðir Ægis. Liam sem er Velskur spilaði í fyrra með Magna frá Grenivík sem Ægir mætti einmitt í úrslitakeppninni. Hann var valinn besti leikmaður Magna á síðasta tímabili.
Liam er sterkur varnarmaður sem á eftir að styrkja hóp Ægismanna mikið fyrir komandi átök.
