Oldboys léku sinn fyrsta leik í Íslandsmótinu í gærkvöldi. Mótherjinn var Víkingur og fór leikurinn fram í fyrirtaks knattspyrnuveðri á Þorlákshafnarvelli.
Útlitið var nokkuð gott í hálfleik en þá voru Ægismenn yfir 2:0. Mörkin skoruðu Össi og Þór Emils. Liðið fékk síðan mörg fín færi til að bæta við mörkum í síðari hálfleik en í staðin fyrir að bæta í forustuna náðu gestirnir að lauma inn þremur mörkum og stela sigrinum. Leiknum lauk því með sigri Víkings 2:3.
Á myndinni hér við hliðina má sjá hóp Ægismanna í gærkvöldi.
Image URL: /upload/images/Oldboys 2011/CIMG1905 (800×600)_thumb.jpg