Meistaraflokkur tók á móti Dalvík/Reyni á Þorlákshafnarvelli í dag. Aðstæður voru eins og best verður á kosið, völlurinn flottur og veðrið skaplegt.
Okkar menn byrjuðu leikinn af krafti og uppskáru mark strax á 7. mínútu þegar Matejic bætti einu á markareikninginn. Ægismenn fengu nokkur fín færi í hálfleiknum til að bæta við marki en tókst ekki að nýta þau.
Í síðari hálfleik staðan svipuð, okkar menn sterkari og gestirnir sköpuðu sér lítið af færum. En 1:0 forusta er brothætt og á 71. mínútu náðu norðanmenn að skora mark úr einu að sínum fáu færum og lauk leiknum með 1:1 jafntefli. Vissulega vonbrigði þar sem okkar menn voru sterkari aðilinn í leiknum og fengu fín færi til að komast í vænlega stöðu.
Eftir leikinn er Ægir með 7 stig í 9. sæti en það er stutt í 7. sæti og liðin í 4. – 6. eru aðeins með 10 stig og mikið eftir af mótinu.
Næsti leikur liðsins er gegn Sindra og fer hann fram á Hornafirði laugardaginn 22. júní.