Við höldum áfram að kynna leikmenn meistaraflokks til leiks og næstur er Þorlákshafnarpilturinn Fannar.
Hvað heitir maðurinn? Fannar Haraldur Davíðsson
Hvað ertu gamall? Tvítugur.
Er strákurinn á lausu? Nei í sambandi.
Hvaðan ertu? Þorlákshöfn.
Hvernig líst þér á hópinn og sumarið? Mér líst mjög vel á hópinn, það er mikil breidd í honum og margir ungir leikmenn sem vilja sanna sig. Sumarið leggst vel í mig og verður gaman að vera partur af þessari liðsheild.
Hvaða stöðu spilar þú? Varnarmaður.
Með hvaða liðum hefur þú spilað? Ægi og svo með Selfossi og Hamri í 2. flokki.
Uppáhaldslið í ensku og önnur áhugamál? Liverpool er mitt lið, svo hef ég líka fylgst með NBA-deildinni og þar held ég með L.A. Lakers.
Við þökkum Fannari kærlega fyrir spjallið og óskum honum góðs gengis.