Leikmannakynning – Ágúst Freyr Hallsson

15. maí 2014

| Garðar

Leikmannakynning – Ágúst Freyr Hallsson

Ágúst FreyrÞá kynnum við næsta leikmann til leiks sem er ungur Árbæingur.

Hvað heitir maðurinn Ágúst Freyr Hallsson.

Hvað ertu gamall 19 ára.

Er strákurinn á laustNei í sambandi.

Hvaðan kemur þúKem úr Árbænum.

Hvernig líst þér á hópinn og sumariðLíst helvíti vel á hópinn, erum vel spilandi lið og ættum að ná langt í deild ef að allir eru heilir líkamlega og andlega. Mjög bjartsýnn fyrir sumarið.

Hvaða stöðu spilar þú Sóknarmaður.

Með hvaða liðum hefur þú spilaðÓlst upp í Fylki en fór síðan í Víking Reykjavík fyrir 2 árum.

Með hvaða liði heldur þú í enskaEr grjótharður United maður.

Áttu önnur áhugamálFylgist aðeins með NBA en svo eru ég og mamma dugleg að búa til kerti um helgar ef að tími gefst.

Við þökkum Ágústi kærlega fyrir spjallið og óskum honum góðs gengis í sumar.