Leikjanámskeið Ægis hefst mánudaginn 8. júní. Námskeiðið er fyrir alla krakka fædda 2003 – 2008. Það verður starfrækt mánudaga til fimmtudaga frá 13:00 – 15:00.
Margt skemmtilegt verður brallað að venju s.s fjöru
ferð, sundlaugarpartý, ýmsar íþróttagreinar prófaðar og margt fleira.
Námskeiðið er í tvær vikur (til 18. júní) en síðan verður hægt að bæta þriðju vikunni við (til 25. júní). Gjald fyrir tvær vikur er 5.000 kr. en 7.500 fyrir þrjár.
Umsjónarmaður verður Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari meistaraflokks Ægis auk aðstoðarmanna úr vinnuskólanum. Skráning er í íþróttamiðstöðinni (480 3890) eða hjá Alfreð (692 5282).
Mæting er við íþróttamiðstöðina.