Langt og strangt ferðalag hjá 5. flokk karla

28. jún 2011

| umsjon

Langt og strangt ferðalag hjá 5. flokk karla

Sameiginlegt lið Hamars/Ægis í 5. flokk karla lagði heldur betur land undir fót í gær.  Liðið brunaði til Ísafjarðar og lék þar tvo leiki. 
Hópurinn lagði af stað frá Þorlákshöfn kl. 8:00 og var komin til Ísafjarðar um 14:30.  Þar lék liðið tvo leiki, A tapði 4:2 í jöfnum og spennandi leik sem tapaðist rétt í lokin en B gerði 3:3 jafntefli í baráttu leik.
Lagt var af stað heim kl. 17:00 og lauk ferðalaginu við íþróttamiðstöðina í þorlákshöfn kl. 00:15.  Strákarnir voru ótrúlega hressir alla leiðina og eiga hrós skilið fyrir fjörið.
Framundan er  leikir hjá C og D við Fram í dag og síðan hefst N1-mótið seinni part miðvikudags.


Image URL: /upload/images/5. karla gegn ÍBV 16. maí/CIMG1936 (800×600)_thumb.jpg