KV númeri of stórir í dag

18. maí 2013

| Garðar

KV númeri of stórir í dag

Byrjunarlið Ægis í dag

Byrjunarlið Ægis í dag

Meistaraflokkur karla tók á móti KV í dag á Þorlákshafnarvelli.  Talsverður sunnanvindur var á vellinum og hafði hann talsverð áhrif á leikinn.

Gestirnir léku undan vindinum í fyrri hálfleik og höfðu talsverða yfirburði.  Þeir náðu að skapa sér nokkur álítleg færi en Ægismenn björguðu þó yfirleitt í tæka tíð.  Lítill kraftur var í sóknum heimamanna gegn sterkri gjólunni.

Á 23. mínútu skoruðu KV síðan fyrsta markið úr víti.  0:1 staða í hálfleik hefði verið ásættanleg niðurstaða en rétt fyrir hlé skoruðu gestirnir annað mark sitt sem var ansi langsótt enda kom það frá þeirra eigin vallarhelmingi.

Í síðari hálfleik hresstust okkar menn heldur og náðu aðeins að ógna marki KV.  Gestirnir voru þó alltaf hættulegir og virðast vera með ansi sterkt lið.  Ægismenn náðu ekki að setja mark í leiknum en KV bættu við tveimur, úr víti á 80. mínútu og því fjórða í uppbótartíma.  Eitt mark í stöðunni 0:2 hefði kannski breytt leiknum en KV landaði nokkuð öruggum sigri á Þorlákshafnarvelli í dag.

Næsti leikur Ægis er útileikur gegn ÍR og fer hann fram fimmtudagskvöldið 23. maí.