Knattspyrnuskóli Ægis fyrir 7. flokk karla og kvenna og fyrra leikjanámskeið sumarsins hófust í dag. Það má segja að veðrið hafi leikið við alla enda skemmtu börnin sér mjög vel. Rúmlega 30 börn eru skráð í knattspyrnuskólann og 18 krakkar mættu á leikjanámskeiðið í dag. Enn er hægt að skrá iðkendur á bæði námskeiðin og er þá best að hafa samand við Garðar eða í íþróttamiðstöðina.
Dagskrá leikjanámskeiðið má finna hér en dagskrá fyrir hverja viku knattspyrnuskólans er hægt að sjá inná síðunum 7. flokks karla og kvenna.
GG
Knattspyrnuskóli og leikjanámskeið byrjuð
12. jún 2007
| umsjon