Nú eru allir yngri flokkar komnir í jólafrí. Í gær var jólapakkaæfing hjá 7. flokk og 4. og 5. flokkur voru með jólavídeópartý. 4. flokkur kvenna var með létta jólaæfingu í salnum og á sunnudag voru 4. og 3. flokkur karla með jólamót. Vonandi ná allir að slaka vel á í jólafríinu og hafa það rosalega gott yfir hátíðarnar.
Þjálfarar Ægis senda öllum iðkendum góðar jólakveðjur.