Meistaraflokkur lék í dag gegn Hamri en leikurinn fór fram í Kórnum. Ægir hafði talsverða yfirburði í leiknum en Hamarsmenn lágu til baka og beittu skyndisóknum. Okkar menn náðu þó ekki að nýta yfirburðina og voru oft klaufar upp við markið en liðið fékk 8 – 9 góð færi.
Leiknum lauk með 1:1 jafntefli en það var Snorri sem skoraði mark Ægis beint úr aukaspyrnu.
