Meistaraflokkur karla lék gegn Haukum á Fótbolti.net mótinu í gær. Þetta var fyrsti leikur liðsins en leikið var í Hafnarfirði.
Leiknum lauk með jafntefli en bæði mörkin komu í fyrri hálfleik. Það var engin annar en Milan Djurovic sem skoraði mark Ægis en hann er mættur aftur í búning liðsins.
Næsti leikur meistaraflokks á mótinu er gegn Selfossi en hann fer fram á Selfossvelli laugardaginn 24. janúar og hefst kl. 12:00.