Meistaraflokkur lék gegn Árborg í kvöld og fór leikurinn fram á Selfossi. Fyrir leikinn var Árborg í öðru sæti með 17 stig en Ægir í því fjórða með 13 stig. Sigur var því mjög nauðsynlegur fyrir bæði lið.
Leikurinn fór mjög fjörlega af stað og áttu bæði lið fína spretti. Eftir nokkur góð færi var það Sæli sem kom Ægi yfir um miðjan fyrri hálfleik með laglegu marki og staðan í leikhlé 0:1.
Síðari hálfleikur var ekki síður fjörugur og sköpuðu bæði lið sér nokkur góð færi. En það voru heimamenn sem skoruðu sannkallað heppnismark eftir aukaspyrnu þegar um 20 mín. voru liðnar af hálfleiknum. Eftir þetta fengu Ægismenn nokkur mjög góð færi til að komast yfir aftur og áttu einnig að fá vítaspyrnu undir lok leiksins en inn vildi boltinn ekki. Leiknum lauk því með jafntefli 1:1.
Næsti leikur Ægis er gegn KFR og fer hann fram á Þriðjudaginn á Hvolsvelli.
Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/DSC_0115_thumb.JPG