Jafntefli hjá meistaraflokk í fyrsta leik Lengjubikars

20. mar 2011

| umsjon

Jafntefli hjá meistaraflokk í fyrsta leik Lengjubikars

Meistaraflokkur karla lék sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum á laugardag.  Mótherjinn var KFG en leikið var á Stjörnuvelli.
Í byrjunarliði Ægis var þannig skipað að í marki var Hlynur, í vörn voru Trausti, Matti, Sæli Guðmunds og Bjarni Már.  Á miðjunni voru Lárus, Michael, Vignir og Ingimar og frammi voru Sæli Jóns og Milan.
Leiknum lauk með 1:1 jafntefli en mark Ægis skoraði Milan.  Bæði mörkin komu í síðari hálfleik.

Næsti leikur Ægis fer fram laugadaginn 26. mars gegn Sindra á Selfossvelli og hefst kl. 14:00.  Allir að mæta og hvetja strákana til sigurs.

                                                                  Áfram Ægir