Jafntefli á Hornafirði

22. jún 2013

| Garðar

Jafntefli á Hornafirði

DSC_0048Meistaraflokkur karla lék gegn Sindra á Hornafirði í dag. Leiknum lauk með 1:1 jafntefli í leik þar sem okkar menn höfðu forustu fram á síðustu mínútu. Haukur Már skoraði mark Ægis á 50. mínútu en Sindri jafnaði í uppbótartíma.

Ægismenn voru að spila vel í dag og fengu ágætis sénsa til að bæta við marki á síðustu mínútunum og úrslitin því vonbrigði. Eftir leikinn er liðið í 9. sæti með 8 stig.

Næsti leikur liðsins fer fram næstkomandi fimmtudag á Þorlákshafnarvelli. Að þessu sinni er það Grótta sem kemur í heimsókn.