Jafnrétti og mannréttindihjá Knattspyrnufélaginu Ægi

Knattspyrnufélagið Ægir stendur vörð um mannréttindi og jafnan aðgang allra að starfi félagsins. Í starfsemi Ægis er ekki liðin mismunun á grundvelli kyns, kynhneigðar, uppruna, trúar, fötlunar, þjóðernis eða annarra persónulegra þátta.
Ægir leggur áherslu á:

    • jafnan aðgang að íþróttastarfi fyrir öll börn og ungmenni
    • virðingu og sanngirni í samskiptum
    • jákvætt og uppbyggilegt umhverfi fyrir iðkendur, foreldra og starfsfólk

Félagið hefur núllþol gagnvart:

    • kynþáttafordómum
    • hatursorðræðu
    • einelti eða annarri óæskilegri hegðun

Allar kvartanir eða ábendingar sem varða jafnrétti og mannréttindi eru teknar alvarlega og unnið er með slík mál í samræmi við reglur KSÍ og ÍSÍ.
Nánari umfjöllun um samskipti, hegðun og viðmið má finna í Foreldrahandbók Ægis og á síðunni Fræðsla og forvarnir.