Hugi Jóhannesson er genginn í raðir Ægis á lánssamningi frá KR. Hann er markmaður og hefur undanfarið verið þriðji í röðinni hjá meistaraflokki KR. Það er mikill styrkur fyrir Ægi að fá Huga því öllum er ljóst hversu mikilvægt markmannsstaðan er. Við eigum efnilega markmenn en þeir þurfa tíma og gott fyrir þá að fá svo sterkann leikmann til að læra af.
Hugi á láni frá KR
3. apr 2013
| Garðar
