K riðill Pollamóts KSÍ var leikinn í Þorlákshöfn í dag. Til leiks mættu Breiðablik, Keflavík, Álftanes og Ægir/Hamar.
Þrátt fyrir mikla rigningu sáust oft glæsilegt tilþrif á vellinum og strákarnir létu bleytuna ekkert á sig fá. Saman tefldu Ægir og Hamar fram þremur liðum sem stóðu sig öll með prýði.
