Það er mikið fjör á æfingum 8. flokks. Í 8. flokk eru börn fædd 2006 – 2007 og þau æfa alla mánudaga og miðvikudag frá 16:00 – 17:00 á gamla grasvellinum. Gyða Steina þjálfar flokkinn en þessir yngstu iðkendur Ægis eru mjög áhugasamir og æfa af kappi. Þeir sem hafa áhuga á að bætast í hópinn geta kíkt á æfingu og tekið þátt í skemmtilegum æfingum.
Hressir krakkar í 8. flokk
2. júl 2012
| Garðar