5. flokkur kvenna lék í dag geng toppliði ÍA á Íslandsmótinu. Leiknum lauk með 0:1 sigri Skagastúlkna sem skoruðu mark sitt í fyrri hálfleik. Okkar stúlkur stóðu sig frábærlega og áttu tvö mjög góð færi til að jafna leikinn undir lokin. Síðast þegar liðin áttust við sigraði ÍA 10:1 og því ljóst að Ægis stúlkurnar hafa bætt sig mikið. Næsti leikur hjá stelpunum er gegn Keflavík á mánudag.
Hér við hliðina má sjá Önnu þjálfara ræða við stúlkurnar í hálfleik. Fleiri myndir úr leiknum eru síðan hér fyrir neðan.
GG
Image URL: /aegirfc/upload/images/5. kvenna gegn ÍA/Picture 001_thumb.jpg
Image URL: 5. kvenna gegn ÍA