Hnátumót KSÍ sem er Íslandsmót 6. flokks kvenna var haldið í Þorlákshöfn í gær. Leikið var í F riðli en með Ægi í honum voru Keflavík, Snæfellsnes, Reynir og Álftanes. Álftanes mætti ekki til leiks.
Okkar stúlkur stóðu sig með prýði, sigruðu Snæfellsnes 3:1, Reyni 6:0 og gerðu jafntefli við Keflavík 1:1. Glæsilegt hjá stelpunum.
Í liði Ægis voru: Írena, Svala, Auður, Talía, Elva, Arna, Bergrún, Elín, Máney, Haddý og Sandra. Nokkrar myndir frá mótinu eru komnar inn á myndasíðuna.
Image URL: /aegirfc/upload/images/Hnátumót 2008/DSC_0332_thumb.JPG