Á fimmtudaginn heldur unglingaráð Ægis sitt árlega sumarkaffi. Þar munu borðin svigna undan kökum og brauðréttum sem Ægisforeldrar hafa galdrað fram. Að venju verður kaffið haldið í Versölum og er frá 14:00 – 17:00. Ágóðinn af kaffinu rennur til iðkenda vegna kostnaðar við sumarmótin.
Það er tilvalið að fagna sumri með glæsilegu kaffihlaðborði og styrkja um leið gott málefni.
Fullorðnir: 1.500 kr.
14 – 17 ára: 1.000 kr.
7 – 13 ára: 500 kr.
6 ára og yngri: Frítt